Illugi Gunnarsson menntamálaráðhera hefur kynnt þingflokki sjálfstæðismanna þau áform sín að falla frá frekari lækkun útvarpsgjalds sem rennur í rekstur RÚV, en það átti að lækka á næsta ári úr 17,800 krónum í 16,400 krónur. Urgur er innan þingflokksins vegna þessa.
Þriggja manna embættismannanefnd skipuð starfsmönnum úr forsætis-, fjármála- og menntamálaráðuneytinu hefur skoðað fjárhagsstöðu og rekstrarhorfur Ríkisútvarpsins að undanförnu til þess að gefa stjórnvöldum sem gleggsta mynd af raunverulegri afkomu stofnunarinnar. Niðurstaðan mun vera sú að fjárhagsstaða hennar sé nokkurn veginn jafn slæm og stofnunin sjálf hefur látið í veðri vaka á undanförnum mánuðum.
Í ljósi þessa hefur menntamálaráðherra sagst ætla að falla frá frekari lækkun á útvarpsgjaldinu - og jafnvel þó svo verði, muni stofnunin áfram búa við þröngan fjárhagsramma eins og skoðun embættismannanefndarinnar hafi leitt í ljós.
Morgunblaðið hefur það eftir þingmönnum sjálfstæðismanna að þessi tillaga ráðherra falli í fremur grýttan jarðveg innan þingflokks þeirra; frestun á lækkun gjaldsins muni verða umdeild í þinginu.
Útvarpsgjaldið sem sett var á við breytingu ríkisstofnunarinnar í opinbert hlutafélag árið 2009 var í fyrstu 14,580 krónur en ætti að vera 23,000 krónur nú hefði það fylgt verðlagsþróun. Það hefur aldrei að fullu runnið til RÚV heldur og til annarra verkefna ríkisins.