Ráðherra aftur til fortíðar?

Félag atvinnurekenda hefur ekki fengið beiðni frá atvinnuvegaráðuneytinu um að tilnefna fulltrúa í endurskipaðan samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga.

Þessu mótmælir félagið í bréfi til Kristjáns Þórs Júlíussonar, landbúnaðarráðherra, og segir að með þessu sé svikið loforð sem gefið var við meðferð laga um búvörusamninga á Alþingi. FA tekur undir gagnrýni ungra bænda á að ráðherra hverfi frá breiðu samráði um búvörusamningana og hverfi til fortíðar, þar sem fáir koma að borðinu.

Meira er hægt að lesa um þetta á vef Félags atvinnurekenda: http://www.atvinnurekendur.is/frettir/fa-skrifar-landbunadarradherra-loford-um-thjodarsamtal-svikid/