Ráðgjafanefnd fundar vegna blóðgjafa

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur farið þess á leit við ráðgjafanefnd um fagleg málefni blóðbankaþjónustu að hún taki til umfjöllunar hvort slaka beri á gildandi reglum um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna. Nefndin mun funda 17. janúar næstkomandi. Algjört bann ríkir um blóðgjöf samkynhneigðra karla á Íslandi. DV.is greinir frá.

Heilbrigðisáðherra hefur einnig óskað eftir áliti nefndarinnar á því hvaða ráðstafanir væru nauðsynlegar til að tryggja öryggi blóðþega, yrði bann við blóðgjöfum samkynhneigðra karlmanna afnumið.

Áður hefur verið greint frá að á flestum hinum Norðurlöndunum sé miðað við 12 mánaða kynlífsbindindi samkynhneigðra karla eigi þeir að fá að gefa blóð og Svíar eru að hugsa um að minnka það niður í 6 mánuði, auk þess sem Danmörk miði við 4 mánaða kynlífsbindindi. Þetta sagði Þórólfur Guðnason smitsjúkdómalæknir í viðtali á Rás 2.

Í frétt DV.is kemur fram að í kjölfar fundar ráðgjafanefndarinnar þann 17. janúar muni nefndin skila heilbrigðisráðherra afstöðu sinni til þess hvort slaka beri á þeim reglum sem gilda hér á landi um blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna.

Ráðgjafanefndin var skipuð af heilbrigðisráðherra þann 15. október 2018. Formaður nefndarinnar er Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækningar og með honum í nefndinni eru Kári Hreinsson, yfirlæknir svæfingadeildar, Ólöf Sigurðardóttir, rannsóknarlæknir og Vilhelmína Haraldsdóttir, sérfræðingur í lyflækningum og blóðsjúkdómum.