Kári Stefánsson, læknir og forstjóri, verður meðal gesta á Hringbraut í fyrramálið, sunnudagsmorgunn milli klukkan tíu og tólf. Viðtalið verður langt og ítarlegt.
Talað verður um stjórnmálamenn, heilbrigðiskerfið, bankana, samningana við kröfuhafana, forsetakosningar hér heima sem og í Bandaríkjunum. Þar bjó Kári um árabil.
Þjóðbraut á sunnudegi verður á dagskrá, bæði útvarps og sjónvarps, Hringbrautar, milli klukkan 10 og 12 í fyrramálið.
Stjórnandi þáttarins er Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Hringbrautar.