Ráðamenn hlusta ekki eftir ráðgjöf

Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðlustjóri, verður gestur í Þjóðbraut í kvöld. Sveinn er ósáttur með hvernig farið er með landið, það ofnýtt og skaðað.

Hann bendir á að ávallt sé farið að ráðum fiskifræðinga um afla á Íslandsmiðum en ekki á ráð þeirra sem þekkja mest og best til landnýtingar og hæfi landsins til beitar og umferðar.

Hann segir meðal annars að væntanlegir búvörusamningar auki enn á neyð landsins.

Sveinn verður í viðtali við Sigurjón M. Egilsson og hefst viðtalið klukkan 21:30 í kvöld.