Ráða sveitarfélögin við grunnskólana?

Áfram verður fjallað um vanda sveitarfélaganna við rekstur grunnskólanna. Þessu efni hafa verið gerð góð skil í hádegisútvarpi Þjóðbrautar. Svo verður áfram í dag.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og borgarfulltrúi Reykjavíkur, verður í viðtali rétt rúmlega hálf eitt í dag þar sem hann svarar spurningum hvað sveitarfélögin geta gert til að tryggja menntun, að kennarar hætti ekki störfum, hvort ríkið verði að koma að og fleiri spurningum um þetta erfiða mál.

Útvarp Hringbrautar er með fréttaþætti í hádeginu, frá klukkan 12:30 til 13:00.

Ritstjóri þáttanna er Sigurjón M. Egilsson.