Qu­e­er Eye stjarn­a heill­uð af Ís­land­i: „Himn­a­rík­i er stað­ur á jörð­u“

Breska raun­veru­leika­stjarnan og tískugúrúinn Tan France, sem þekktastur er fyrir fram­komu sína í Net­flix-þáttunum Qu­eer Eye, er staddur hér á landi á­samt eigin­manni sínum, lista­manninum Rob France. Hjónin hafa birt nokkrar myndir úr ferða­laginu á Insta­gram-síðum sínum en þeir eru staddir hér til að fagna væntan­legu barni sem þeir eru að fara að eignast með hjálp stað­göngu­móður.

Í gær birti Tan til dæmis skemmti­lega mynd af sér við Selja­lands­foss með fyrir­sögninni „Tveir fossar, einn gaur. Það er er brandari þarna ein­hvers staðar.“ Hátt í 160.000 manns hafa líkað við myndina og rúm­lega 500 hafa skrifað at­huga­semd við hana, þar á meðal kollegi Tan úr Qu­eer Eye, hár­greiðslu­maðurinn hýri, Jon­a­t­han Van Ness, sem skrifar:

„Tveir fossar, einn gaur og RISA­STÓR … per­sónu­leiki,“ og lætur fylgja með nokkur tjákn svo brandarinn fari ekki á milli mála.

Þá birti Tan einnig mynd fyrir tveimur dögum þar sem hann sést slaka á í náttúru­laug í mið­nætur­sólinni. Undir þá mynd skrifar hann „‘Ooh Hea­ven is a place on Earth‘ Þetta var tekið rétt eftir MIЭNÆTTI. Hvað í hvaðinu??!!“ og vitnar þar í eitt þekktasta popp­lag níunda ára­tugarins Hea­ven Is a Place on Earth með Belindu Car­lis­le.

France hjónin virðast vera að njóta þess besta sem náttúru­fegurð Suður­lands hefur upp á að bjóða því Rob birti einnig mynda­seríu á sinni Insta­gram-síðu þar sem hann og Tan stilla sér upp við Gull­foss.

Það má því með sanni segja að tveir nýir Ís­lands­vinir hafi bæst í hóp þeirra fjöl­mörgu Hollywood stjarna sem heillast hafa af landi og þjóð.