Pylsurnar áttu aldrei séns í garðabæ í gærkvöld

Laganna verðir voru ekki lengi að slökkva í grilli á túni í grennd við heimili Bjarna Benediktssonar í Garðabæ í gærkvöld en um 10 mótmælendur komu saman skammt frá heimili Bjarna í gjörningaskyni sem mótmælendur kalla meðmæli. Hópurinn vildi mótmæla aðkomu fjármálaráðherra að aflandsskjólum. Bjarni er í Panamaskjölunum og hefur sagt ósatt í Kastljósi um eigin aðild að viðskiptum utan landsteinanna. Á skiltum sem komið hafði verið fyrir mátti lesa: Bless Bjarn1.

Svartsokka vefrit hefur nú birt myndband á facebook þar sem sést hvernig laganna vörður kom með slökkvitæki og sprautaði yfir einnota grill mótmælenda með þeim afleiðingum að pylsur áttu engan séns. Um friðsamleg mótmæli var að ræða þar sem sápukúlur og trúðsnef skipuðu sess.

Fram hefur komið í öðrum fjölmiðlum í morgun að tveir lögreglubílar og ein lögga á bifhjóli hafi séð um að engin vandræði hlytust af uppákomunni fyrir Bjarna. Bæði hefur verið staðhæft að löggan hafi verið í fullum rétti til að sprauta á grillið til að koma í veg fyrir sinubruna eða umhverfisspjöll en gjörningurinn hefur einnig verið kallaður valdníðsla.

Það vakti hörð viðbrögð í samfélaginu þegar Hringbraut birti fyrst fjölmiðla frétt um mótmælin fyrirhuguðu og var einkum gagnrýnt að rými í grennd við heimili fjármálaráðherra ætti að nota sem vettvang. Sú gagnrýni virtist þó sumpart á misskilningi byggð enda stóð ekki til samkvæmt því sem aðgerðarhópur hefur sent frá sér að áreita fjölskyldumeðlimi Bjarna.

Hávær krafa hefur verið bæði á Austurvelli sem og inni í þinghúsinu meðal minnihlutans að Bjarni Benediktsson segi af sér. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sagt af sér sem forsætiráðherra vegna hans tengsla við aflandsskjól og ósannindi,

Myndbandið má skoða hér.