Í samantekt á fréttavef RÚV um fund forsetanna segir að þátttaka Rússa í lofthernaðinum sé háð því skilyrði, að hann samræmdist regluverki Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum um slíka hernaðaríhlutun, en Pútin hafi einmitt ítrekað á fundinum að annað tveggja yrði að liggja fyrir áður en til hernaðar að þeirra hálfu kæmi: Beiðni réttmætra stjórnvalda í viðkomandi landi um hernaðaraðstoð eða samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Fram hefur komið að yfirstandandi loftárásir Bandaríkjamanna og bandalagsþjóða þeirra í Sýrlandi uppfylla hvorugt þessara skilyrða.
Pútín sagði hins vegar útilokað að Rússar tækju þátt í hernaðaraðgerðum á jörðu niðri á sýrlensku landi. Vaxandi hernaðarumsvif Rússa í Sýrlandi undanfarið hafa vakið áhyggjur stjórnvalda á Vesturlöndum. Rússar standa þó fast á því að þar séu fyrst og fremst tæknimenn á ferð, en ekki bardagamenn. Þeir veiti Sýrlendingum vissulega hernaðaraðstoð, en hún felist fyrst og fremst í því að útvega þeim hergögn og mannskap til að kenna heimamönnum að nota þau.
Eftir fund forsetanna, þann fyrsta í ríflega tvö ár, ítrekaði Pútín jafnframt þá skoðun sína, að það væri Sýrlendinga að velja sér nýjan leiðtoga, ekki Bandarískra stjórnvalda eða Franskra eða annarra utanaðkomandi aðila, að því er segir í frétt RÚV um málið í dag.