Vladimir Putin segir að Rússar hafi nú yfir að ráða nýrri gerð kjarnorkuflugskeyta sem herir annarra þjóða ættu engin svör við. Þetta þýddi að önnur lönd þyrftu að taka hernaðarmátt alvarlega. Rússland væri ennþá fremsta kjarnorkuveldi heims.
Þetta kom óvænt fram í ræðu sem Putin hélt um efnahagsmál í dag, en um mánuður er til kosninga í Rússlandi. Putin sýndi myndskeið þar sem nýju flugskeytin fljúga lágt yfir landi og sjó, jafnvel þvert yfir Atlantshaf. Skeytin eru afar langdræg, þau eru torséð og þeim má jafnvel skjóta úr kafbátum. Putin greindi líka frá öðru vopni í þróun sem hann líkti við loftstein sem færi á margföldum hljóðhraða.