Vladimir Pútín verður forseti Rússlands til næstu 6 ára eftir afgerandi sigur í forsetakosningunum í landinu í gærdag, en þar hlaut hann sína bestu kosningu á ferlinum, eða 77 prósent atkvæða.
Kosningarnar voru haldnar í skugga grunsemda og yfirlýsinga um að stjórnvöld hefðu veruleg áhrif á talningu atkvæða og gæfu rangar upplýsingar um kosningaþátttöku, en þar að auki var einum helsta stjórnarandstæðingi landsins meinum þátttaka í kjörinu vegna dóms sem haann hafði hlotið, að eigin sögn af pólitískum ástæðum.
Pútín hefurr ríkt í Rússlandi frá 1999, ýmist sem forseti eða forsætisráðherra og næstu sex árin eru hans, hugsanlega fleiri, en hann brást við með hlátri í gærkvöld þegar hann var spurður af fréttamanni hvort hann hygðist bjóða sig fram að nýja kjörtímabilið. Hann svaraði því líka til að sterk kosning hans nú endurspeglaði góða stöðu Rússlands, jafnt innanlands sem á alþjóðaveettvangi.