Púður sett í skóg­rækt­ina

Í ár verður hægt að styrkja starfið hjá Lands­björg með kaup­um á græðling­um sem verða gróður­sett­ir á Þor­láks­hafn­ars­andi af Skóg­rækt­ar­fé­lagi Íslands. Verk­efnið nefn­ist Skjót­um rót­um og með tím­an­um mun rísa mynd­ar­leg­ur skóg­ur þar sem nú er mikið berang­ur. 

Hug­mynd­in að verk­efn­inu kom úr óvæntri átt en það var Rakel Krist­ins­dótt­ir sem fékk hug­mynd­ina þegar hún var að skrifa Bs. rit­gerð sína og um­fjöll­un­ar­efnið var fjár­mögn­un björg­un­ar­sveit­anna. Á sama tíma hef­ur verið tölu­verð umræða um meng­un vegna skotelda. Um 66% þjóðar­inn­ar kaup­ir flug­elda og í skoðana­könn­un­um hef­ur komið í ljós að 88% fólks er að styrkja mál­efnið með kaup­un­um. 

Rakel nálgaðist björg­un­ar­sveit­irn­ar með hug­mynd­ina og síðan þá hafa hlut­irn­ir gerst hratt en Rót­ar­skot­in verða til sölu á flug­elda­sölu­stöðum björg­un­ar­sveit­anna fyr­ir ára­mót og kosta 3990 krón­ur. Þannig er hægt að kol­efnis­jafna flug­eld­ana sem skotið verður upp um ára­mót­in. Olís, Hekla og Íslenska Gáma­fé­lagið styrkja verk­efnið ásamt aug­lýs­inga­stof­unni Hvíta hús­inu.

Í mynd­skeiðinu er rætt við Rakel og Jón Svan­berg Hjart­ar­son, fram­kvæmda­stjóra Lands­bjarg­ar, og Jónatan Garðars­son, formann Skóg­rækt­ar­fé­lags Íslands, við Þor­láks­hafn­arsand þar sem skóg­ur­inn mun rísa en hann mun heita Ára­mót.