Senn hefst prófatíð og er sums staðar þegar hafin í skólum landsins. Margir eiga undir því að þeim gangi vel í prófatíðinni en kvíði og stress fylgir próftörnum hjá sumum. Er mikilvægt að vinna bug á stressinu með tiltækum leiðum.
Sérfræðingur í nemendastressi, segir að gott geti verið að hreyfa sig til að ýta út stressinu. Að gera nokkrar armbeygjur og hlaupa hring í kringum hús geti komið af stað betri líðan. Þetta kom fram í viðtali á Rás 2 í morgun við Bryndísi Einarsdóttur sálfræðing.
Einnig kom fram að lyfjataka nemenda getur reynst mjög óheppileg og rýrt getu fólks til að leysa verkefni.