Greining Íslandsbanka í dag er sú að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (SÍ) standist próf. Og haldi óbreyttum stýrivöxtum á miðvikudaginn.
Nefndin mun vilja bíða og sjá hver áhrif haftaafnáms komi til með að verða á gengisþróun á næstunni. Og þar með verðbólguhorfur.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra lýsti því yfir í gær að hans vilji sé sá að SÍ lækki vexti. Þar með má vera ljóst að pólitískur vilji er til lækkunar vaxta.
Trúverðugleiki peningastefnunnar eykst við að verðbólga er við eða undir markmiði SÍ í þrjú samfleytt ár.
Trúverðugleikinn byggir á sjálfstæði peningustefnunefndarinnar við ákvarðanatöku. Sá trúverðugleiki er vissulega aldrei mikilvægari en á óvissu tímum.
Óvissa er um gengisþróun. Og þar með á stóran áhrifaþátt verðbólguþróunar.
.