Prófkjör pírata hafin

Píratar halda prófkjör um þessar mundir. Í næsta mánuði mun flokkurinn m.a. halda sameiginlegt prófkjör fyrir höfuðborgarsvæðið, kjördæmin þrjú: Reykjavík – suður, Reykjavík – norður og Suðvesturkjördæmi.  Hringbraut mun heyra í þeim sem sækjast eftir því að leiða flokkinn í kjördæmum landsins.  Gunnar Hrafn Jónsson, fyrrverandi fréttamaður á RÚV og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, mannréttindalögfræðingur og blaðakona komu í spjall í dag. Á næstunni koma fleiri Píratar við sögu í þættinum Þjóðbraut sem er á dagskrá á milli 21 og 22 mándaga til fimmtudags.