Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor við HÍ, gefur Jóni Baldvin Hannibalssyni hæstu einkunn fyrir frammistöðu hans í frelsun Eystrasaltsríkjanna þegar hann var utanríkisráðherra. Doktor Ólafur segir að íslenskir fjölmiðlar hafi þó ekki alveg kveikt á perunni hvað hin djörfu skref ráðherrans varðaði er Jón Baldvin lýsti yfir sjálfstæði ríkjanna í ágúst 1991 og stóð framan við sovéska skriðdreka.
Þetta kemur fram í facebookfærslu hjá Ólafi. Þar segist hann hafa horft á heimildamynd á Rúv um þátt Jóns Baldvins og Uffe Ellemanns um frelsun Eystrasaltsríkja og skrifar eftirfarandi:
„Þor Jóns var magnað; fulltrúi smáríkis gat andæft \"real pólitík\" stóru og \"ábyrgu\" bandamannanna og þrumað fyrir réttlæti og frelsi hinna kúguðu á sameiginlegum fundum. Og svo fór hann á staðinn til að standa framan við sovéska skriðdreka með litháenskum sjalfstæðishetjum. Þá voru víst helstu fréttir íslenskra fjölmiðla um það aðalatriði að ráðherrann hefði týnt skjalatösku sinni!“
Prófessorinn kallar framtak Jóns Baldvins eina flottustu stund íslenskrar sögu. En samkvæmt orðum hans er stundin ekki eitt flottasta móment íslenskrar fjölmiðlasögu.