Stefán Ólafsson, einn þekktasti félagsfræðingur þjóðarinnar, prófessor við HÍ og formaður stjórnar Tryggingastofnunar spyr hvort \"klappstýra\" geti orðið forseti Íslands.
Með því sneiðir prófessorinn að forsetaframboði og þátttöku Höllu Tómadóttur í útrásardansinum fyrir hrun. Ekki síður þeirri staðreynd að Halla var framkvæmdastjóri Viðkiptaráðs rétt fyrir hrun.
\"Viðskiptaráð fór offari í útbreiðslu dólgafrjálshyggju og græðgisvæðingu samfélagsins, ekki síst á þeim tíma sem Halla var þar við stjórnvölinn. Viðskiptaráð og aðrir frjálshyggjuspámenn mögnuðu upp þennan tíðaranda sem á endanum gat af sér hrunið,\" skrifar prófessorinn í pistli á eyjan.is.
\"Það var til dæmis í hennar tíð að skýrslan um framtíðarsýnina “Ísland 2015” var birt. Þar var útrásin og fjármálavæðingin upphafin, með fádæma hroka, óvarkárni og einfeldni (sjá hér). Þar var meðal annars þessi fræga setning: “Viðskiptaráð leggur til að Ísland hætti að bera sig saman við Norðurlöndin enda stöndum við þeim framar á flestum sviðum,\" bætir Stefán við í pistli sínum á Eyjunni sem lesa má í heild hér.
\"Menn rifja nú einnig upp ýmis spor frá útrásarárunum, eins og veislustjórn Höllu í gullveislunni frægu í Mónakó.\"