Ísland er eitt sjö ríkja utan Evrópusambandsins sem styðja refsiaðgerðir sambandsins og Bandaríkjanna gegn Rússlandi vegna herðnaðaraðgerða Rússa í Úkraínu. Gunnar Bragi segir það ekki hafa komið til umræðu á fundinum að draga stuðning Íslands við refsiaðgerðir gegn Rússum til baka. Það geti þó haft miklar afleiðingar fyrir Ísland ef Rússar banna innflutning á matvælum frá Íslandi. Hann var í viðtali hjá RÚV fyrr í kvöld: \"Nei það kom ekki til umræðu á fundinum. Þvert á móti var umræðan þannig almennt á fundinum að það er stuðningur við að halda óbreyttri stefnu í málinu. Auðvitað höfum við þó öll miklar áhyggjur af því hvað gerist ef að þessir markaðir lokast. Það hafa gríðarleg áhrif. Það er alveg ljóst.“
Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, segir ekkert nýtt hafa komið fram á fundinum um áform Rússa en rætt hafi verið um hvernig bregðast má við ef af áformum þeirra verður og hagsmunum Íslands er raskað: \"Utanríkisráðuneytið er að fara yfir það og á í einhverjum samtölum við hagsmunaaðila. Við í utanríkismálanefnd munum eigum fundi á næstunni með hagsmunaaðilum til að heyra þeirra sjónarmið,\" segir Birgir.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í utanríkismálanefnd, sem rætt var við í gær, lýstu stuðningi við afstöðu íslenskra stjórnvalda.