Séra Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Grensáskirkju, sakar konurnar fimm sem kærðu hann til fagráðs þjóðkirkjunnar um meðferð kynferðisbrota um samantekin ráð. Þá veltir lögfræðingur hans því fyrir sér hvort ein kæran sé „runnin undan rifjum biskups, prófasts eða öðrum vinkonum í kirkjunni sem vilji fella séra Ólaf,\" eins og segir í frétt Fréttablaðsins af málinu í dag.
Í fréttinni segir að Ólafur hafi áfrýjað þeim tveimur málum, þar sem sem hann var fundinn sekur um siðferðisbrot í skilningi þjóðkirkjulaga. Haft er eftir Einari Gauti Steingrímssyni, lögmanni Ólafs, að þar sem úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið um kynferðislegt ofbeldi að ræða, heldur einungis siðferðisbrot, séu engin rök fyrir því að framlengja leyfið sem biskup skikkaði klerkinn í vegna málsins, sem hún þó gerði í síðustu viku.
Einar Gautur segir atvikalýsingar kvennanna fimm svo keimlíkar að það bendi til þess að þær hafi samhæft framburð sinn. Segir hann séra Ólaf ekki kannast við atvikalýsingarnar og hafa þá skýringu eina, „að þær hafi smitast úr öðrum málum\" á hendur honum.