Prestarnir brutu ekki af sér

Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðingur og trúarbragðafræðingur segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að engin leið sé að sjá að kirkjan hafi brotið landslög með því að veita tveimur hælisleitendum kirkjugrið. Hann segir að sem betur fer sé ekki þörf á kirkjugrið eins og á öldum áður þegar miðstjórnarvald ríkja var veikt en hins vegar sé slíkt viðhaft enn í dag. Til dæmis í Noregi og þar virði lögreglan ákvörðun söfnuða kirkna sem vilji veita hælisleitendum grið. Þar sé þess þó mjög vandlega gætt að viðkomandi sem fær verndina hafi ekki brotið af sér á glæpsamlegan hátt.