Sr. Skírnir Garðarson, prestur í Lágafellssókn hefur séð sig knúinn til að flytja skrifstofu sína heim til sín og starfa þar að hluta vegna ágreinings á vinnustaðnum. Hann og sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sóknarprestur kirkjunnar, hafa verið send í leyfi til áramóta vegna óánægju innan sóknarinnar.
Frá þessu er greint á mbl.is í dag en Skírnir segir þar að óánægjan eigi rætur sínar að rekja til persónuverndarmáls sem lauk formlega fyrir ári. Í því máli var hann kærður fyrir brot á persónuverndarlögum ásamt starfsmanni Mosfellsbæjar. Segist hann hafa verið sýknaður í málinu en sjálfur þurft að standa undir kostnaði vegna málsins. Þá hafi verið litið framhjá andmælarétti hans og þannig hafi framkvæmdastjóri kirkjunnar brotið gegn lögum um opinbera stjórnsýslu.
Í fréttinni segir að Vinnueftirlitið hafi til skoðunar kvörtun Skírnis vegna meints eineltis Ragnheiðar og Hreiðars Arnar Zoega Stefánssonar, framkvæmdastjóra kirkjunnar, í sinn garð. Segist hann heldur ekki hafa fengið sanngjörn meðmæli frá kirkjunni þegar hann sótti um starf prests á Akranesi nýverið.
Aðspurður segist Skírnir gera ráð fyrir því að vera á launum á meðan leyfinu stendur, eða til 1. janúar 2016.
Formaður sóknarnefndar Lágafellskirkju vildi ekki tjá sig um málið í samtali við mbl.is.