Athygli vekur að Prestafélagið styðji frumvarpið um afnám helgidagafriðar því Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar að hún teldi lög um helgidagafrið af hinu góða eins og Rúv bendir á. Prestar styðja því Pírata og BF en ekki eigin biskup í málinu.
Í frumvarpinu um afnám helgidagafriðar, sem Helgi Hrafn Gunnarsson, pírötum er fyrsti flutningsmaður að, segir að við gildistöku laganna breytist að frídagar séu sunnudagar, aðfangadagur jóla frá kl. 13, jóladagur, annar dagur jóla, gamlársdagur frá kl. 13, nýársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar dagur páska, uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar dagur hvítasunnu, sumardagurinn fyrsti, 1. maí og 17. júní.
\"Með frumvarpi þessu er lagt til að lög um helgidagafrið, nr. 32/1997, falli brott. Markmið laganna er að vernda helgihald og tryggja frið, næði og hvíld og takmarka afþreyingu fólks á helgidögum þjóðkirkjunnar. Flutningsmenn sjá ekki ástæðu til að takmarka frelsi fólks með lögum þannig að það varði sektum að standa að t.d. bingó, happdrætti, dansleikjum eða öðrum samkomum á helgidögum þjóðkirkjunnar. Frítökuréttur og hvíldartími er tryggður í kjarasamningum en til að réttur launafólks til frídaga eigi styrka lagastoð er lögð til orðalagsbreyting á 6. gr. laga um 40 stunda vinnuviku þannig að í staðinn fyrir að þess sé getið að helgidagar þjóðkirkjunnar séu frídagar verði umræddir dagar taldir upp í ákvæðinu sem lögbundnir frídagar,\" segir í greinargerð.