\"Samviskufrelsið er stjórnarskrárvarinn réttur og meðal dýrmætustu mannréttinda. Engar sérstakar reglur gilda um samviskufrelsi presta. Sem betur fer,“ segir Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti og starfandi biskup.
Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins í dag, en tildrög umfjöllunarinnar eru þau að Biskupsstofu barst þann 2. júlí síðastliðinn beiðni frá innanríkisráðuneytinu um að svara einni af fimm fyrirspurnum Andrésar Inga Jónssonar, varaþingmanns Vinstri grænna, um þjónustu presta og mismunun á grundvelli kynhneigðar sem bornar voru upp við innanríkisráðherra á Alþingi.
Fram kemur í umfjöllun á visir.is í dag að í greinargerð með svari Biskupsstofu komi fram að þjóðkirkjan hafi litið svo á að réttur samkynja para til kirkjulegrar hjónavígslu væri tryggður þrátt fyrir samviskufrelsi presta. Þá segir í svörum Biskupsstofu að ráðuneytið hafi ekki kallað eftir tillögum biskups í þessum efnum og því ekki sett reglur um hvenær prestum sé skylt að framkvæma hjónavígslu. Á kirkjulegum vígslumönnum hvíli ekki sama skylda og borgaralegum vígslumönnum.
\"Þjóðkirkjan fékk með nýjum hjúskaparlögum heimild til að gefa saman pör af sama kyni,“ segir Kristján og bætir við á vefnum: \"Þjóðkirkjan hefur nýtt sér þann skilning sem fram kemur í greinargerð með hjúskaparlögunum að ekki þurfi að skylda starfandi prest til þess að framkvæma hjónavígslu samkynhneigðra gegn vilja sínum,“ segir hann.

Engar reglur eru í gildi um samviskufrelsi presta innan þjóðkirkjunnar sem heimila þeim að neita fólki um þjónustu á grundvelli kynhneigðar. Þetta kemur fram í svari Biskupsstofu til innanríkisráðuneytis. Hart hefur verið tekist á um hjónavígslu hinsegin fólks innan kirkjunnar síðustu ár. Samkynhneigðir hafa ekki sömu réttindi og gagnkynhneigðir innan kirkjunnar því prestar geta neitað að gifta samkynhneigða ef trúarleg sannfæring þeirra leyfir þeim það ekki.
Hilmar Hildar Magnúsarson, formaður Samtakanna \78