Ólöf Nordal, innanríkisráðherra metur það svo að prestar hafi ekki heimild til að hafna því að gefa saman samkynhneigð pör á grundvelli kynhneigðar þeirra á meðan þeir gegna opinberum skyldum.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en þar áréttar ráðherra að á meðan hjúskaparvígsla hafi lögformlegar afleiðingar, svo sem reglur hér á landi kveða á um, geti opinberir starfsmenn ekki farið þvert gegn settum reglum. Landslög kveði með öðrum orðum skýrt á um rétt allra til hjónavígslna, óháð kynheigð - og prestar verði að lúta sömu lögum og aðrir landsmenn, vilji þeir áfram gegna opinberum störfum.
\"Með þessari yfirlýsingu innanríkisráðherra er komin upp alveg ný staða í málinu,\" segir Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup og starfandi biskup Íslands við blaðið - og bætir við: \"Ef frelsi skoðana og sannfæringar sem stjórnarskráin tryggir gildir ekki hér, gildir það ákvæði þá nokkrun tíma,\" spyr hann og er þeirrar skoðunar að prestar megi hafna því að gefa saman samkynhneigð pör, stríði það gegn viðhorfi þeirra til hjónabandsins. Skoðanir presta beri því að taka fram fyrir landslög, á grundvelli tjáningarfrelsis.
Hilmar Hildar Magnúsarson, formaður Samtakanna ´78 segist í blaðinu geta verið sammála starfandi biskupi um það eitt að eyða verði óvissu í málinu: \"Það væri mjög til bóta,\" og bætir svo við: \"Það skiptir ekki máli hversu fáir mögulega hafna samkynja pari um hjónavígslu, það sem skiptir máli er að heimildin sé ekki til staðar í lögum,\" segir hann.
Ráðherra hyggst beita sér fyrir því að lög um hjónavígslur verði hér eftir skýrari og taki af allan vafa um það hvað prestum beri að gera í þessum efnum.
Sjá einnig leiðara Hringbrautar um þetta efni hér.