Til snarprar umræðu kom á útvarpsþættinum Harmageddon í morgun milli Frosta Logasonar þáttastjórnanda og Hildar Eirar Bolladóttur prests og viðmælanda vegna pistils sem Hildur skrifaði í gær þar sem hún ritaði með kaldhæðnum hætti um þær afleiðingar sem yrðu af aðskilnaði ríkis og þjóðkirkjunnar og setti fram nokkur skilyrði.
Sá pistill var ritaður í kjölfar mælingar Gallup sem sýndi að stuðningur landsmanna við að ríkið haldi úti þjóðkirkju fer hratt þverrandi meðal landsmanna. Hildur Eir ítrekaði sálgæsluhlutverk kirkjunnar og hefur vakið upp spurningar um hvort prestar telji sig á pari við geðlækna og sálfræðinga. Hefur víða í umræðunni komið fram sú skoðun að nær væri að niðurgreiða sálfræðiþjónustu en halda úti ríkislaunuðum prestum.
Hörð umræða varð milli Hildar Eirar og Frosta Logasonar á Harmageddon þar sem presturinn hækkaði róm sinn ítrekað. Meðal þess sem fram kom hjá Hildi var að hún væri ekki að klóra sér í rassgatinu sem prestur alla daga, hún þyrfti ekki að vera prestur ef launagreiðslum frá ríkinu yrði hætt til hennar. Hildur sagðist geta farið að gera eitthvað annað og kom fram hjá henni að hún gæti jafnvel hugsað sér að fara að vinna fyrir Krossinn eða önnur trúfélög ef aðstæður breyttust.
Þetta dró þáttastjórnandi Harmageddon í efa og gneistaði á köflum milli spyrils og viðmælanda í samtalinu.
Á samfélagsmiðlum eftir að viðtalið var tekið hefur verið nefnt að um óhefðbundið samtal hafi verið að ræða þegar kirkjunnar þjónar sitja fyrir svörum.
Hlusta má á viðtalið hér.