Pressaði niður pýramídann

Jón Björnsson, forstjóri Festi sem rekur m.a. Krónuna og Elkó, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Þeir ræða um þær breytingar sem Jón gerði á verslunum Kaupás þegar hann var ráðinn forstjóri Festi. Þá ræða þeir breytingarnar sem Jón innleiddi sem forstjóri Magasin du Nord í Kaupmannahöfn. Þar pressaði hann niður stjórnunarpýramídan, stytti boðleiðir og straumlínulagaði reksturinn. Jón situr í stjórnum þriggja þekktra fyrirtækja erlendis.