Prentmiðlar fá mestu auglýsingatekjurnar

Prent­miðlar fengu mest aug­lýs­ingafé allra fjöl­miðla á Íslandi í fyrra, sam­kvæmt ráð­stöfun fimm stærstu birt­ing­ar­húsa lands­ins. Hlut­deild prent­miðl­anna hefur þó minnkað sam­hliða auknu vægi inn­lendra vef­miðla, en í Evr­ópu eru vef­miðl­ar orðnir verð­mæt­ari aug­lýsendum en prent­miðl­ar. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fjöl­miðla­nefndar.

Töl­urnar sem um ræðir eru unnar úr ráð­stöfun birt­inga­fjár frá fimm stærstu birt­ing­ar­húsum Íslands­: ABS ­fjöl­miðla­hús­i, Birt­ing­ar­hús­in­u, ­Medi­aCom, H:N ­Mark­aðs­sam­skipt­um, og Rat­sjá ­Media, sem Pip­ar-T­BWA ­fellur einnig und­ir. Þetta er í fjórða ­skipt­ing­i ­sem nefndin birtir sam­an­tekt um skipt­ingu birt­inga­fjár, sem er sú fjár­hæð sem fyr­ir­tæki verja til aug­lýs­inga í fjöl­miðl­u­m. 

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-07-24-prentmidlar-fa-mestu-auglysingatekjurnar/