Prent & vinir en lofa engu

Prent & vinir er verk sem listamennirnir Leifur Ýmir Eyjófsson & Sigurður Atli Sigurðsson stofnuðu til árið 2015 sem færanlegt prentverkstæði með einni rauðri prentvél. Hugmyndina tóku þeir frá pælingunni í landbúnaði þar sem bændur keyptu oft saman traktora & fl til að nota við búskap.

Á þennan hátt hófst verkið Prent & vinir þar sem þeir settu upp færanleg prentverkstæði fyrir aðra listamenn & í raun alla sem vildu koma & skapa prentverk í þessari rauðu prentvél.

Nú 2021 eru þeir komnir á þann stað með verkið að höfuðstöðvar Prent & Vina við Laugalæk hefur opnað fyrir gesti & alla þá sem geta notað visku þeirra & aðstöðu við að búa til sín prentverk. Það eru fastir opnunartímar og svo popup vinnustöfur á dagskránni hjá þeim, en þeir lofa engu. Sjáið viðtal við þá félaga hér fyrir ofan.