Popúlistar og hægri flokkar unnu

Hreyfingar hægri popúlista og andstæðingar ESB voru sigursælir í ítölsku þingkosningunum um helgina. Fimm stjörnu hreyfingin sem leggst gegn ESB er nú stærsti flokkurinn á þingi með yfir 32% atkvæða og samkvæmt síðustu talningu og sterka stöðu. Bandalag hægri flokka, þar á meðal flokks Silvio Berlusconis er með samtals rúmlega 31%. Fráfarandi stjórnarflokkur demókrata fékk aðeins um 19% atkvæða.

Engin skýr stjórnarmeirihluti liggur fyrir eftir kosningarnar. Fréttaskýrendur eru sammála um að nú taki við erfiðar og hugsanlega langdregnar stjórnarmyndunarviðræður, eins og svo oft áður á Ítalíu.