Pönkari stýri bjartri framtíð

 

Einar Kárason rithöfundur telur mikið gagn að róttækum vinstrimönnum inn í stjórnmál samtímans. Þetta kemur fram í pistli hins vinsæla rithöfundar á Eyjunni.

Einar sparar ekki litskrúðugt orðalag, hann segir að stjórnmál hafi orðið eins konar meginstraumur hægristefnunnar. „Hér á landi er stóra bölið auðvitað einkavæðing auðlindanna – og við getum þakkað Hruninu að sú þróun gekk þó ekki lengra; ef túrbókapítalisminn hefði ­fengið að þróast óáreittur væri fyrir löngu búið að selja eða gefa bæði Landsvirkjun og Orkuveituna og öll þannig fyrirtæki, ásamt auðlindunum sem þau nýta.“

Skáldið heldur áfram: „Í þannig bulli er mikið gagn að öfgamönnum; kommúnistaboðskap að hætti manna eins og Einars Olgeirssonar, Gvendar jaka; þarna hefði þurft fleiri raddir eins og hennar Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur. Og þar erum við held ég að nálgast skýringar á uppdráttar­sýki vinstrihreyfingarinnar; við ­þurfum að muna að það var róttæka og sérvitra og dálítið skrýtna lessan ­Jóhanna Sig sem síðast vann fyrir vinstrimenn sigur í alþingis­kosningum.“

Einar segir augljósa eftirspurn eftir  öðruvísi stjórnmálamönnum. „Það varð auðvitað mjög áberandi þegar Jón Gnarr og Besti flokkurinn buðu fram, það sést líka á uppgangi Píratanna nú um stundir. Björt framtíð er komin með formann sem ekki er úr hinni hefðbundnu deiglu, heldur er þar kominn fyrst og fremst hugsuður, pælari, bókmenntamaður, músíkant – pönkari. Og verður spennandi að sjá hverju það skilar þeim,“ skrifar skáldið.