Donald Trump sendi Mike Ponpeo, verðandi utanríkisráðherra og nú forstjóra CIA, til Pjongjang, höfuðborgar Norður-Kóreu, til fundar með Kim Jong-un leiðtoga Norður Kóreu um páskana.
Trump ýjaði að fundinum í gær þegar hann ræddi við fjölmiðla um fund hans og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans á Mar-a-Lago setrinu í Flórída. „Við höfum átt beinar viðræður á mjög háu stigi, gríðarlega háu stigi, við Norður-Kóreu. Ég held í alvöru að þetta skapi velvilja, að góðir hlutir séu að gerast. Við sjáum til hvað gerist,“ sagði Trump.
För Pompeos til Pjongjang er liður í undirbúningi fyrirhugaðs leiðtogafundar Kims og Trumps, sem haldinn verður í lok maí eða byrjun júní. Staðsetning þess fundar hefur ekki verið ákveðin.
Við sama tækifæri sagðist Trump styðja væntanlegar viðræður Kóreuríkjanna. Svo háttsettur bandarískur stjórnarfulltrúi hefur ekki átt fund með stjórnarliðum í Norður Kóreu síðan árið 2000.