Það getur ekki kallast annað en pólitískur óraunveruleiki þegar svo er komið í stjórnmálunum á Íslandi að Vinstri grænir séu uppteknastir allra flokka að verja gjörðir gallhörðustu íhaldsmanna landsins.
Þetta er tónninn í samtali þeirra Sigurjóns Magnúsar Egilssonar, ritstjóra Miðjunnar, Þóris Guðmundssonar, fréttastjóra Stöðvar 2 og Sigmundar Ernis, ritstjóra Hringbrautar í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut, en hann var frumsýndur í gærkvöld. Og það er nóg um að ræða eins og þátturinn ber með sér; sögulegar ófarir United Silicon í Helguvík, straumhvörfin í olíuvinnslunni á Drekasvæðinu, varnarstöðu Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra og örvæntingarfulla leit sjálfstæðismanna í Reykjavík að kosningamáli sem getur hrifið aðra en harðasta kjarna íhaldsins í borginni.
Þeir Sigurjón og Þórir meta stöðu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sterka, hann hafi reynst farsæll borgarstjóri á kjörtímabilinu sem senn er á enda, þrátt fyrir allt og allt - og það sé beinlínis hlægilegt að kenna honum um bilaðar skolplagnir og hvað þá hlákuna upp við Silungapoll, eins og Mogginn reynir þessa dagana með öllum ráðum gamla mannsins í Móunum.
Ritstjórarnir eru endursýndir í dag og eru einnig aðgengilegir á vefnum hringbraut.is