\"Það er þó virðingarvert að stjórnmálamenn viðurkenni mistök sín og færi rangar ákvarðanir til betri vegar með því að draga þær til baka. Það er fátítt í stjórnmálum okkar á Íslandi.\"
Þetta skrifar stjónrmálaskýrandinn Ólafur Jón Sívertsen um mistök meirihlutans í borgarstjórn að skella fram illa ígrundaðri tillögu um að sniðganga ísrealeskar sem hafi jú verið gert til að kveðja vinstriöfgamanneskjuna Björk Vilhelmsdóttur eftir dugga þjónustu. En Ólafi Jóni, sem gjörþekkir innviði íslenskrar stjórnsýslu er ekki skemmt yfir Þórðargleði andstæðinga Dags og hans fólks í borgarstjórn, en þar sé svo sannarlega kastar grjóti úr glerhúsi: \"Þannig var Hönnu Birnu fyrirmunað að viðurkenna að upplýsingum hafi verið lekið úr ráðuneyti hennar, með eða án hennar vitneskju. Ragnheiður Elín gat ekki skipt um skoðun varðandi náttúrupassann fyrr en henni varð ljóst að allir, nánast allir, voru á móti henni í málinu. Þá loks hengslaðist hún til að bakka en hafði þá eytt dýrmætum tíma til einskis. Sama er um Illuga Gunnarsson að segja. Hann fæst ekki til að ræða við fjölmiðla um misgjörðir sínar og fjármálalegt siðleysi meðan á alþingismanns-og ráðherraferli hans hefur staðið,\" skrifar Ólafur Jón í nýjasta pistli sínum á Hringbraut.
\"Þá er grátbroslegt að fylgjast með viðbrögðum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur,\" skrifar hann áfram og bætir við: \"Þessir fjórir sjálfstæðismenn sem þar dvelja hafa lítið sem ekkert látið á sér kræla frá kosningum vorið 2014. Þeir eru nánast gleymdir,\" en núna vilji þeir allt í einu að Dagur íhugi stöðu sína: \"Sjálfir virðast þeir ekki þurfa að íhuga neitt. Þeir hafa nánast ekkert gert í 16 mánuði ...\"
Steininn hafi þó tekið úr þegar Ragnheiður Elín Árnadóttir, af öllum stjórnmálamönnum hafi byrjað að tala um mistök: \"Þegar hún hættir sér út á þann hála ís að tala um kjánaskap eða bjánaskap hjá öðrum stjórnmálamönnum er óhætt að tala um að moldin sé farin að rjúka í logninu. Ráðherraferill Ragnheiðar Elínar er samfelldur bjánahrollur. Ef einhver íslenskur stjórnmálamaðuir hefur ekki efni á að gefa einkunnir af þessu tagi, þá er það hún.\"