Jón Baldvin sagði þá ríkisstjórn hafa verið pólitískt meðvitundarlausa og í stað þess að bregðast við þeim vanda sem við blasti hafi þau Geir og Ingibjörg Sólrún verið að dúlla sér við að koma Íslandi í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. „Meðan húsið brann.“
Jón Baldvin nefnir einnig ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur eftir hrun. Þeirri ríkisstjórn hafi tekist margt en ekki að breyta lögum um stjórn fiskveiða, ekki breytingum á stjórnarskrá og ekki að reisa skjaldborg um heimilin.
Allt þetta geri að Samfylkingin eigi við mikinn vanda að eiga í dag.