Pólitískar hreinsanir ráðherra

Það er engin tæpitunga töluð í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem Eyrún Magnúsdóttir, umsjónarmaður SunnudsagsMoggans og Guðmundur Andri Thorsson, ritstjóri Tímarits Máls og menningar, dálkahöfundur og rithöfundur setjast gegnt Sigmundi Erni og rýna í fréttamál líðandi stundar.

Meðal umræðuefna er hvað minnipokamennirnir sem ráðast á saklausa borgara úti í heimi fá mikla athygli í fjölmiðlum, svo sem þá dreymir um í lítilmennsku sinni, en brotin sjálfsmynd þeirra verður snögglega að helgimynd eftirlifandi trúbræðra þeirra sakir ofsafenginnar fjölmiðlunar og þeirrar feiknlegu athygli sem voðaverk þeirra fá á Vesturlöndum.  

Landsréttsmálið fær drýgstan tíma í umræðu þáttarins, en bæði Eyrún og Andri sakna rökstuðnings ráðherra í því máli - og raunar heldur sá síðarnefndi því fram að ráðherrann hafi einfaldlega viljað sýna vald sitt í þessu efni og sjái nákvæmlega ekkert aðfinnsluvert við þær pólitísku hreinsanir sem þar hafi verið viðhafðar fyrir opnum tjöldum. Eyrún segir verst af öllu að nýtt millidómsstig hafi orðið til í ófriði, en nýr Landsréttur hafi síst af öllu þurft á því að halda að fara af stað með laskað orðspor og vantrú fólks á hlutlægni hans.

Meint spilling í embættismannakerfinu, jafnt hjá Reykjavíkurborg og ríkinu ber einnig á góma, en útboð á verkefnum beggja apparatanna virðist æði tilviljanakennd og komast vinir og kunningjar að kjötkötlunum sem fyrr, Ríkisendurskoðun til armæðu og ama, þótt skammarskýrslur hennar skili engu í umbótum.  

Veik stjórn og stjórnarandstaða koma til tals - og Kári Stefánsson, sem rekur hörðustu pólitíkina á Íslandi í dag - og loks er rætt um Costco-skjálftann sem ríður yfir landið - og landann, en slík er hrifning stöku kúnna á framtaki bandaríska kaupfélagsins að talað er um að bensínið úr dælum þess dugi betur en önnur jarðefni sem flutt eru til landsins!

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:00 í kvöld.