Hingað til hefur það ekki þótt jafngilda pólitískri áhættu að skrifa hugleiðingar sínar á leiðaraopnu Morgunblaðsins, en það varð þó að henda borgarfulltrúann Kjartan Magnússon í dag, tveimur dögum fyrir leiðtigakjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hvar Kjartan býður sig fram, einn fimm frambjóðenda.
Fyrirsögnin á grein Kjartans er góð og gild, Rjúfum kyrrstöðuna í Reykjavík, en missir óneitanlega marks í ljósi ljósmyndar Árna Sæbergs fyrir ofan tilskrif borgarfulltrúans, en þar má sjá ekki einn eða tvo byggingarkrana sem gnæfa yfir miðborginni heldur að minnsta kosti sex járnrisa af stærstu gerð, til vitnis um hressilega uppbyggingu í höfuðstaðnum við Sundin blá.
Og það er ekki beinlínis að myndin beri með sér kyrrstöðuna í Reykjavík, hvað sem grein Kjartans líður.