Ungir jafnaðarmenn, Ungir sjálfstæðismenn, Ung vinstri-græn, Ungir píratar og Samband ungra framsóknarmanna ætla að ganga saman í Gleðigöngu Hinsegin daga á morgun.
Ungliðahreyfingar eru ósammála um margt, en ekki um mikilvægi þess að tryggja beri mannréttindi hinsegin fólks. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá ungliðahreyfingunum.
Pólitískar ungliðahreyfingar hafa ekki tekið þátt í göngunni hér á landi hingað til. Í tilkynningunni segir:
Með þáttöku okkar viljum við sýna að þó við nálgumst málin með mismunandi hætti og höfum ólíkar pólitískar áherslur þá erum við öll sammála um mannréttindi hinsegin fólks. Þá viljum við vekja athygli á því að mannréttindi hinsegin fólks eru verkefni stjórnmálanna og stjórnmálamenn mega ekki sofna á verðinum þegar kemur að þessum málaflokki.