Pólitíkin á nesinu: alger samstaða

Eining og samstaða ríkir um fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar í gær, þriðjudaginn 15. desember og þykir niðurstaðan bera vitni um árangursríkt samstarf sem tekist hefur á með bæjarfulltrúum Seltjarnarnesbæjar á kjörtímabilinu. 

Það er því annar bragur á pólitíkinni á Nesinu en fólk á að venjast, einkanlega af Austurvellinum þar sem plagsiður er að níða skóinn náungans og una öðurm þess að hafa eitthvað nýtilegt til málanna að leggja. Öðru er sumsé að heilsa á Nesinu þar sem allir flokkar leggjast á eitt að bæta samfélagið, eins og dæmin sanna.  

Ekki alls fyrir löngu boðaði bæjarstjórn Seltjarnarness fjórðungs lækkun leikskólagjalda frá og með næstu áramótum, en með því eru gjöldin ein þau lægstu á landinu öllu. Á sama tíma eru boðaðar enn frekari niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum, en þær nema núna kr. 75.000,-  Þá greiðir bæjarfélagið tómstundastyrki að upphæð kr. 50.000,- með öllum börnum á aldrinum 6 – 18 ára. Með þessum áherslum vill bæjarstjórn koma til móts við barnafjölskyldur í bæjarfélaginu.

Í fjárhagsáætlun 2016 er greint frá því að álagning fasteignagjalda í A-flokki verði 0,20% af matsverði íbúðarhúsnæðis og lóðar og álagningarprósenta útsvars verði langt undir hámarki eða 13,70%, en hámarkið er 14,52%. Þá er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun að tekjur bæjarfélagsins nemi tæpum 2,5 milljarða króna og að rekstrarafgangur verði 16 milljónir króna.

Helstu framkvæmdir á Seltjarnarnesi á næsta ári felast í byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis. Einnig stendur til að endurnýja gervigrasið á knattspyrnuvelli Íþróttafélagsins Gróttu ásamt því að sinna öðrum almennum viðhaldsframkvæmdum.

Skuldahlutfall bæjarins er með því lægsta á landinu en það er núna komið undir 50% og fer lækkandi frá ári til árs.