Forvígismenn Pokasjóðs verslunarinnar, sem Bónus og Hagkaup eru aðilar að, hafa afhent Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur 20 milljónir króna til að deila út til skjólstæðinga sinna fyrir jólin.
Framlagi Pokasjóðs er skipt til helminga milli þessara hjálparstofnana og er í formi gjafakorta sem gilda í matvöruverslunum innan sjóðsins. Inneign á hverju korti er 10.000 kr. Gjafakortin nýtast til kaupa á öllum vörum til jólanna sem fást í verslunum innan Pokasjóðs, en þær eru um 160 talsins um allt land.
Pokasjóður fær tekjur sínar af sölu plastburðarpoka í 160 verslunum um land allt. Pokasjóður úthlutar styrkjum til verkefna sem heyra undir almannaheill. Má þar nefna verkefni eins og umhverfismál, menningarmál, listir, íþróttir og mannúðarmál. Pokasjóður hefur úthlutað um 1,5 milljarði króna til ýmissa verkefna á síðastliðnum 20 árum.
Framlag Pokasjóðs var afhent í Grensáskirkju. Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar og Anna Pétursdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur tóku á móti framlaginu úr hendi Bjarna Finnssonar, formanns stjórnar Pokasjóðs, en stjórnarmennirnir Finnur Árnason, Höskuldur Ólafsson og Ómar Valdimarsson voru einnig viðstaddir afhendinguna.