Plottið: ólöf næsti seðlabankastjóri!

Sá þaulreyndi yfirmaður íslenskrar stjórnsýslu sem Ólafur Jón Sívertsen er spáir því að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins verði að launa Ólöfu Nordal varaformennskuna í flokknum með embætti sem hún hefur þráð lengi og mikið.

Hann sér plottið í hillingum. Hanna Birna hafi nauðsynlega þurft að fara - og Ólöf jafn nauðsynlega að koma, en sú síðarnefnda eigi þá greiða inni: \"Ólöf á sér einn draum í þessu veraldarvafstri,\" skrifar Ólafur Jón í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is og bætir við: \"Hann er sá að verða bankastjóri Seðlabanka Ísland eins og faðir hennar. Jóhannes Nordal var svo lengi æðsti stjórnandi Seðlabankans að hann og fjölskylda hans hafa nánast litið á Seðlabankann sem fjölskyldufyrirtæki Nordalanna,\" skrifar innanbúðarmaðurinn og minnir á að Jóhannes sé enn með skrifstofu á vegum bankans þó hann sé orðinn 91 árs og hættur störfum fyrir 20 árum. Einnig muni hann hafa í sinni vörslu mikilvæg skjöl bankans sem enginn annar en hann á aðgang að.

En þá að sjálfu plottinu: \"Samkomulagið sem Bjarni Benediktsson gerði við Ólöfu Nordal er svona: Ólöf heggur á hnútinn núna varðandi varaformanninn. Hún gefur til kynna að hún sækist eftir þingsæti í kosningunum 2017 og fer í prófkjör eftir rúmt ár, haustið 2016. Fullvíst er talið að hún nái efsta sæti í Reykjavík með stuðningi Bjarna. En nokkru fyrir kosningar vorið 2017, skömmu áður en gengið verður frá framboðslistum, þá dregur hún sig út af listanum og tekur við starfi Seðlabankastjóra af Má Guðmundssyni.\"

Ólafur Jón þekkir þetta allt innan frá: \"Bjarni Benediktsson gerði samkomulag við Má um að hann héldi áfram starfi seðlabankastjóra um það bil hálft kjörtímabil og viki fyrir kosningar vorið 2017, áður en núverandi ríkisstjórn fer frá. Þetta þótti vera mikill Salómónsdómur hjá Bjarna. Hann var undir gífurlegri pressu frá áhrifamönnum í stjórnarflokkunum sem vildu losna við Má, m.a. vegna átakanna við Samherja sem mikið hefur verið fjallað um að undanförnu. Hugmyndin var sú að ráða 2 bankastjóra í stað Más. Flokkseigendur í Sjálfstæðisflokknum vildu fá Tryggva Þór Herbertsson í annað starfið en Framsókn átti hitt sætið. Þórólfur Gíslason hvatti mjög til dáða varðandi þetta og töldu ýmsir að hann ætlaði sér sjálfur í starfið. Það er þó óstaðfest.\"

Og Ólafur Jón hefur áður reynst spámaður í eigin föðurlandi - og því þá ekki núna: \"Gangi þessi flétta eftir, nær Ólöf takmarki sínu um að verða seðlabankastjóri. Hún hefur áður gegnt formennsku í stjórn bankans og leiddi einnig nefnd sem vann að endurskoðun laga um bankann. Gjaldið sem hún þarf að gjalda, eða öllu heldur verkið sem hún þarf að vinna, er að taka að sé að ryðja Hönnu Birnu úr vegi og gegna varaformennsku næstu 16 mánuðina, fram á vor 2017. Þetta er að raungerast í því að Hanna Birna hefur þegar vikið úr vegi,\" skrifar innsti koppur í búri íslenskrar stjórnsýslu.