Minnka þarf plastmengun og úrgang

Þátturinn Súrefni, sem er nýr þáttur um umhverfismál var á dagskrá Hringbrautar í gærkvöldi og verður framvegis á mánudagskvöldum, en hann er í umsjá Lindu Blöndal og Péturs Einarssonar.

Plastúrgangur frá heimilum og fyrirtækjum fer sífellt vaxandi. Gríðarlega mikið endar urðað ofaní jörðinni og svo er plast líka í litlum ögnum sem verða ekki fangaðar svo glatt. Efni sem fylgja plasti er að finna í loftinu sem við öndum að okkur og finnst í blóði fólks – og gríðarlegt magn í er hafinu.  Linda Blöndal sest niður með Elvu Rakel Jónsdóttur teymisstjóra Græns samfélagshjá Umhverfisstofnun en Elva hefur einna mestu þekkingu hér á landi í þessum efnum.

Annar útgangur sem fer frá samfélagi manna er lyfjaúrgangur. Erfitt er að henda reiður á hve miklu af lyfjum er hent sem fer svo út í umhverfið. Hvatt er til að fólk fari með lyf til förgunar í apótek en víst er að það fer margt aðra leið þegar því er hent. Pétur Einarsson kom við á Lyfjastofnun og ræddi við forstjóra hennar, Rúnu Hauksdóttur Hvannberg og leit við í Urðarapóteki og fékk nánari upplýsingar hjá Eygerði Margrétardóttur deildarstjóra umhverfis- og úrgangsstjórnunar Reykjavíkurborgar.