Plastmengun í kræklingi rannsökuð

Umhverfisstofnun hefur samið við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum að rannsaka umfang örplastmengunar í kræklingi á völdum stöðum við Ísland. Þetta er einnig áfangi í að leggja grunn að frekari rannsóknum á örplasti í hafinu og lífríki þess við Ísland.

Tilkynning þessa efnis má sjá á ust.is, vef Umhverfisstofnunar.

Sýnatökur hafa verið í gangi í sumar og klárast um miðjan september. Í kjölfarið verður farið í greiningar á plastinu. Niðurstöður, sem bornar verða saman við önnur lönd þar sem sambærilegum aðferðum hefur verið beitt á skelfisk, eru væntanlegar fyrir lok ársins 2018, segir í tilkynningunni.