Árvekniátakið Plastlaus september hefst, eins og nafnið gefur til kynna, þann 1. september. Þetta er þriðja árið í röð sem það fer í gang og hefur mikið áunnist á þeim tveimur árum sem eru liðin síðan ákveðið var að ráðast í átakið.
Þannig sýna tölur frá Sorpu að plast skili sér betur til endurvinnslu og hlutfall þess fer minnkandi í almennu heimilissorpi. Aðgengi og úrval af plastlausum vörum hefur stóraukist og nú má finna í almennum matvöruverslunum plastminni og plastlausar vörur, auk þess sem umræða í samfélaginu um ofgnótt plasts er orðin meiri.
Að árvekniátakinu standa grasrótarsamtökin Plastlaus september, en meðlimir þeirra eru einstaklingar með ólíka menntun og reynslu. Aðstandendur átaksins og samstarfsaðilar hvetja fólk til þess að taka þátt í Plastlausum september, með því að velja sér eitt eða fleiri markmið fyrir mánuðinn, til dæmis með því að nota ekkert einnota plast í september.
„Það er okkar von sem stöndum á bak við átakið að þátttaka veki fólk til umhugsunar um það mikla magn plasts sem til fellur á hverjum degi og hafi þau áhrif að plastnotkun minnki. Plastlaus september leggur áherslu á að hafa jákvæðni að leiðarljósi þegar kemur að breytum neysluvenjum og allir geti haft áhrif,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.
Áhersla er lögð á að benda á þær leiðir sem hægt er að fara til að draga úr plastnotkun og eru allar breytingar í átt að minni plastnotkun sagðar skipta máli.
Í fréttaþættinum 21 í gærkvöldi ræddi Sigmundur Ernir við Heiði Magnýju Herbertsdóttur og Amöndu Da Silva Cortes hjá Plastlausum september um átakið:
Sunnudaginn 1. september verður Plastlausum september hleypt af stokkunum með opnunarhátíð bæði í Reykjavík og á Akureyri. Í Reykjavík verður opnunarhátíðin í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og stendur yfir frá klukkan 12:00 – 16:00. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun setja átakið formlega klukkan 12 og um leið afhenda Bláskelina, sem er viðurkenning fyrir framúrskarandi plastlausa lausn. Markmið viðurkenningarinnar er að benda á það sem vel er gert og stuðlar að minni plastnotkun.
Í kjölfarið munu Margrét Hugadóttir frá Landvernd og Björn Steinar Blumenstein vöruhönnuður og Brynjólfur Stefánsson frumkvöðull frá Plastplan halda fræðsluerindi. Í salnum verða fræðslubásar og markaður með umhverfisvænar og plastlausar vörur. Þetta er mögulega einn stærsti umhverfismarkaður sem haldinn hefur verið hér á landi þar sem yfir 20 söluaðilar munu kynna vörur sínar. Einnig verða 8 aðilar með fræðslu- og kynningarbása þar sem almenningi gefst kostur á að kynna sér betur umhverfismál.
Á Akureyri verða erindi og umræður um umhverfismál í Deiglunni frá kl 14:00-16:00. Þar taka til máls Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Vistorku, Linda Guðmundsdóttir frá Rauða krossinum, Snæfríður Ingadóttir ferðabókahöfundur og Eyrún Kristín Gunnarsdóttir sálfræðingur.
Finna má allar nánari upplýsingar um Plastlausan september, aðstandendur og átakið almennt á www.plastlausseptember.is og www.facebook.com/PlastlausSeptember/.