Plastkrónur teknar upp hér á landi?

 

 

Bretland mun taka nýtt skref í mars á næsta ári, prenta 5 punda seðla í löngum bunum – úr plasti!

Ekki hefur orðið umræða hér á landi um hvort íslenska krónan verði plastkennd en þeir sem muna tímana tvenna geta rifjað upp íslensku álkrónuna sem var skammlíf og verður seint getið sem afreks í íslensku efnahagslífi. Hefur verið rætt um álkrónuna sem lágpunkt í okkar sögu, árið 1976.

Í frétt Daily Mail af málinu verður aftur á móti ekki séð að Bretar skammist sín neitt fyrir að ætla að taka upp plastpeninga. Kemur fram að bæði verði plastseðlarnir bresku endingarbetri en pappírsseðlar og einnig verðir erfiðara að falsa preska pundið – eftir að það verður plastvætt.

Umhverfissinnar gætu þó haft eitthvað um framkvæmdina að segja, en bót er í máli að enginn hendir peningum út í náttúrunni eða á öðrum vígstöðvum.

Lesa má nánar um þetta hér.