Pirringur vegna þingmanna á skólabekk

Fjöldi þingmanna hefur undanfarið stundað nám samhliða þingstörfum. Þetta veldur pirringi meðal annarra þingmanna.

Í Séð og heyrt segir af þessu og að rökin séu að erfitt sé að sinna starfsskyldum á Alþingi ef mikill tími fari í nám.

Aðrir fjölmiðlar greindu frá því ekki alls fyrir löngu þegar rimma varð um lokaverkefni Karls Garðarssonar þingmanns við HR. Annar þingmaður, Brynjar Níelsson, var leiðbeinandi Karls. Þá kom fram í fréttum að lokaverkefni Karls fjallaði um Ríkisútvarpið en  yrði ekki aðgengilegt almenningi. Þá neitaði Karl að gefa upp hvaða einkunn hann hefði fengið.

Karl er einn þeirra sem Séð og heyrt nefnir sem námsþingmenn.

Fram kemur að á nefndarfundum sitji sumir þingmenn og séu hreinlega að læra fyrir næsta skólatíma. Má af því tilefni rifja upp harða gagnrýni Össurar Skarphéðinssonar á Silju Dögg Gunnarsdóttur í umræðum um niðurlagningu Þróunarsamvinnustofnunar fyrir jól. Össur gerði athugasemd við hve Silja Dögg væri sem nefndarmanneskja óvirk. Þá birti Fréttablaðið úttekt þar sem fram kom að hún hefði aðeins talað í örfár mínútur á öllu haustþinginu. Geta má þess að Össur lauk sjálfur doktorsgráðu áður en hann tók fyrst sæti á þingi.

Silja Dögg er á lista Séð og heyrt yfir þingmenn í námi eða aðra sem hafi verið í námi á þingtíma nýverið. Einnig er nefndur Vilhjálmur Árnason, Elsa Lára Arnardóttir, Haraldur Einarsson og Róbert Marshall.

Í ljósi þess að almenningur greiðir þingmönnum laun og að þingmenn hafa þann trúnað einan að sinna almenningi sem best og vinna lýðræðinu sem mest gagn hefur Hringbraut sent fyrirspurnir vegna málsins og boðar frekari umfjöllun síðar.