Guðrún Ágústa Þórdísardóttir, formaður Pírata á Norðausturlandi, segir í nýjum pistli á bloggsíðu sinni að ef Íslendingar grípi ekki tækifærið til siðbótar nú í ljósi veikrar stöðu ríkisstjórnarinnar sé stjórnin ekki bara vanhæf heldur íslenska þjóðin einnig.
Formaðurinn rekur í pistlinum hrunið, vonbrigðin með Vinstri stjórnina, kosningaloforð formanns Framsóknarflokksins sem vann stórsigur vegna orðræðu um útlenska hrægamma, rýrar efndir kosningaloforða svo nokkuð sé nefnt auk þess sem heilbrigðiskerfið kosti sjúka stórfé. Atburðir líðandi stundar eru formanni Pírata á Norðausturlandi þó efstir í sinni, hin svokölluðu skattaskjólsmál.
Um lok páskaleyfis Alþingis næsta mánudag og þau tíðindi sem hafa verið boðuð hefur formaður Pírata á Norðausturlandi þetta að segja:
\"Nú er svo komið að hið virðulega Alþingi kemur aftur saman 4. apríl, eftir að hafa eytt páskafríinu í súkkulaðiát og annað sukk. Þá fer að reyna á blessaða þjóðina enn og aftur. Boðað hefur verið til mótmæla og standa vonir til að almenningur sé búinn að fá nóg af siðleysi og hreinum lygum. Til dæmis því að þrátt fyrir að vegsama krónuna við hvert tækifæri, hefur ráðherrum og öðrum fyrirmennum þó ekki fundist hún þess verð að standa á bak við heimilisfjármálin og því flýtt sér að koma mjólkurpeningunum fyrir í suðrænum sjóðum.
Þó að það sé náttúrulega hressandi að láta ljúga að sér, svíkja sig og láta svindla á sér reglulega, þá segi ég fyrir mína parta að ef Íslendingar gera ekki eitthvaða róttækt núna, þá erum við kannski ekki eingöngu með vanhæfa stjórnmálamenn heldur ættum við að gangast við því að vera vanhæf þjóð,\" skrifar formaður Pírata á Norðausturlandi. Pistilinn má lesa í heild hér.
Í gær gerðu minnihlutaflokkarnir á Alþingi að sameiginlegri tillögu stjórnarandstöðunnar að láta reyna á þingrof og fá boðað til kosninga.