Vart munu vera þess dæmi áður að einn stjórnarandstöðuflokkur mælist með meira fylgi en sjálf ríkisstjórnin, en sú er niðurstaðan í nýjustu fylgiskönnun MMR sem kynnt var í dag. Píratar mælast þar með 32% fylgi, en ríkisstjórnin með 30% fylgi.
Píratar bæta við sig 5 prósentustigum frá síðustu könnun MMR sem gerð var í mars og virðast naga fylgið hægt og bítandi af hinum stjórnarandstöðuflokkunum sem eru ýmist með rösklega 10 eða 8 prósenta fylgi, þar af Björt framtíð með 8,3% en sá flokkur virðist vera að koma sér fyrir sem minnsti stjórnarandstöðuflokkurinn. Athygli vekur einnig hvað Samfylkingin skorar lágt í MMR-könnuninni, en hún er komin niður fyrir 11% í fylgi. Framsókn er á sama róli og Samfylking og Vinstri grænir með sína tíund og Sjálfstæðisflokkurinn, sem dalar áfram í fylgi, nálgast 20%.
Stjórnmálafræðingar hafa bent á að fylgisaukningu Pírata megi að einhverju leyti rekja til lýðræðisvakningar meðal þjóðarinnar, svo og æ minni trúar almennings á gamaldags flokkapólitík sem virðist vera úr tengslum við almenning. Þá er einnig nefnt að á miðju kjörtímabili sé fólk oft og tíðum búið að fá nóg af ríkjandi stjórnvöldum sem geri minna en þau tali og fari á stundum með völd sín eins og þau eigi þau; við það fari svokallað óþreyjufylgi af stað og leiti gjarnan á þann stað sem er fjærst ráðamönnum hvers tíma.