Píratar vilja stutt þing um tvö mál

Aðalfundur Pírata samþykkti í gærdag tillögu þess efnis að Píratar vinni að því að tvö mál verði meginmál næsta kjörtímabils; stjórnarskrármálið og þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald umsóknarferilsins við Evrópusambandið.
 
Tveggja daga aðalfundi Pírata lauk seint í gær, en þar kom fram að fundarmenn vilja leggja megináherslu á þau tvö mál sem fyrr segir. Tillaga í þá veru var samþykkt eftir að nokkrar breytingartillögur voru gerðar á henni, en hún er í þessa veru: \"Að næsta kjörtímabil verði stutt og þar á þinginu verði eingöngu til umfjöllunar tvö mál; stjórnarskrármálið og aðildarumsóknin að Evrópusambandinu. Og þingið gangi út á það að samþykkja að færa þjóðinni þetta hvort tveggja; annars vegar í þjóðaratkvæðagreiðslu hvað varðar Evrópusambandsmálið og hins vegar að samþykkja nýja stjórnarskrá, sem sagt ný stjórnskipunarlög byggð á tillögum stjórnlagaráðs. Við höldum að þetta sé aðalmálið hjá þjóðinni. Við höldum það að fylgi, þetta mikla fylgi Pírata, byggi á því að fólk vill að Píratar geri grundvallarbreytingar.“