Píratar vilja rækta kjöt: „hver bóndi væri að rækta sína út­gáfu af kjúk­linga­læri eða nauta­lund“

Píratar lögðu fram í fimmta sinn þings­á­lyktunar­til­lögu þess efnis um að fela sjávar­út­vegs- og land­búnaðar­ráð­herra að út­búa að­gerðar­á­ætlun um inn­leiðingu kjöt­ræktar. Kjöt­rækt er tækni sem felur í sér að fram­leiða kjöt án þess að slátra þurfi dýri. Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins. Í þessu felst að í stað þess að framleiða heilt dýr er einungis ræktaður sá hluti dýrsins sem ætlunin er að nýta.

Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að öll um­ræða um tæknina sé já­kvæð. Tæknin geti leyst af hólmi verksmiðjuframleiðslu á kjöti. Þá muni það einnig leysa ýmis vandamál sem fylgja núverandi framleiðslukerfi á matvælum.

„Verk­smiðju­fram­leiðsla á dýrum til mann­eldis eða annarrar notkunar er frekar sóða­leg,“ segir Björn og viðurkennir að skrefið úr hefðbundnum landbúnað yfir í kjötrækt yrði erfitt og að pólitískur vilji yrði að vera til staðar. Aðspurður um hvort hann hafi ekki áhyggjur af skoðun bænda svaraði hann:

„Það var grein í Bænda­blaðinu fyrir nokkrum árum þar sem talað var um ræktað kjöt og það var mjög flott grein,“ segir Björn og bætir við að kjötrækt sé framtíðin. Að eftir hundrað ár muni öllum finnast fáránlegt að framleiða dýr í verksmiðjum.

„Ég lít á þetta eins og vín­rækt eða að brugga bjór þar sem hver bóndi væri að rækta sína út­gáfu af kjúk­linga­læri eða nauta­lund.“