Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, sendir áminningu inn í stjórnarmyndunarviðræður Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um að standa vörð um tækifæri allra óháð kyni, þar á meðal ókyngreind salerni.
Tilefnið er umræða um þörf á ókyngreindum salernum innan veggja Háskóla Íslands. Fréttablaðið greindi frá að háskólaneminn og hinsegin aktívistinn Mars Proppé hafi tekið málin í sínar eigin hendur og fjarlægja kynjamerkingar af klósettum í HÍ til að mótmæla skorti á ókyngreindum salernum.
„Ókyngreind salerni skipta máli. Ég fagna því að þessi umræða hafi ratað inn í HÍ. Það þarf að breyta reglugerðum. Bæði til að vinnustaðir sem vilja gera sín salerni ókyngreind fái að gera það og svo að almenningssalerni verði að jafnaði ókyngreind,“ segir Dóra Björt á Facebook.
„Við í Reykjavíkurborg erum búin að vera að ýta á eftir reglugerðarbreytingum hvað þetta varðar í nokkur ár. Fyrsta ákvörðun mannréttindaráðs á þessu kjörtímabili var að gera salerni stjórnsýsluhúsnæðis okkar ókyngreind sem okkur skildist að væri leyfilegt. En svo vorum við gerð afturreka. Við höfum fjarlægt okkar merkingar, verið gert að hengja þær upp aftur og svo höfum við staðið í bréfaskriftum við ráðuneytin og Vinnustaðaeftirlitið.“
Hún beinir svo orðum sínum að Katrínu Jakobsdóttur, Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni:
„Ég vil hér með senda áminningu inn í stjórnarmyndunarviðræður um mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi og tækifæri allra óháð kyni. Líka þegar kemur að hversdagslegum hlutum eins og salerni og aðgengi að húsnæði og aðstöðu og sérstaklega þá - Því þetta hefur áhrif á líf okkar á hverjum degi.“
Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar tekur undir þetta:
„Það er orðin rosaleg tímaskekkja að ekki sé hægt að hafa salerni ókyngreind, þrátt fyrir að lög um kynrænt sjálfræði hafi verið lögfest fyrir þónokkru síðan.“